Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 8.6.2018

8.6.2018 12:13

Framkvæmdir á Höfuðborgarsvæðinu

Í dag Föstudaginn 8. júní er stefnt að því að fræsa og malbika hægri akrein á Reykjanesbraut við Vogaveg í átt að bænum. Þrengt verður um eina akrein og búast má við lítilsháttar umferðartöfum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli 05:00 og 21:00.

Aðfaranótt laugardags 9. júní er stefnt að því að malbika ramp frá Bústaðarvegi niður Hafnarfjarðarveg. Þrengt verður í eina akrein á Kringlumýrarbraut og rampinum verður lokað. Búast má við lítilsháttar umferðartöfum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli 18:00 og  07:00.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Akstursbann á hálendisvegum

Akstursbann er nú á fjölmörgum hálendisvegum og -slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Því miður ber talsvert á því að ökumenn virði ekki merkingar um þessar lokanir sem settar eru á til að hlífa bæði vegunum sjálfum og náttúrunni í kringum þá fyrir átroðningi og skemmdum sem auðveldlega verða á þessum árstíma. Því er rétt að árétta að það er lögbrot að fara inn á veg framhjá merkinu allur akstur bannaður. Sjá nánar hér

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.