Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 8.12.2017

8.12.2017 13:18

Ábendingar frá veðurfræðingi

Litur gulur.

Hvöss norðvestanátt með éljalofti og skafrenningi frá Höfn til norðurs að Vopnafirði. Hvassast er í Hamarsfirði, en blint getur verið á köflum í skafrenningi á fjallvegum á Austfjörðum og Austurlandi.

Færð og aðstæður

Á Suður- og Vesturlandi eru vegir víða hvar greiðfærir en þó er eitthvað um hálku eða hálkubletti. 

Á Vestfjörðum er hálka eða snjóþekja á flestum leiðum. Ófært er norður í Árneshrepp. 

Hálka eða hálkublettir eru á vegum  á Norðvesturlandi en á Norðausturlandi er hálka og snjóþekja. Lokað er á Dettifossvegi.

Á Austurlandi er hálka, snjóþekja og hálkublettir og víða skafrenningur. Ófært er á Öxi og Breiðdalsheiði. Mjög hvasst er i Hamarsfirði.

Snjóþekja eða hálka er með suðausturströndinni.

Breiðafjarðarferjan Baldur

Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og  á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.

Hálendisvegir

Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.