Tilkynning um færð og ástand
Umferðarþjónusta - Tilkynning - 8.12.2017
Færð og aðstæður
Á Suður- og Vesturlandi eru vegir víða greiðfærir en þó er eitthvað um hálku eða hálkubletti.Það er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á vegum á Vestfjörðum.
Hálka eða hálkublettir eru á flestum vegum á Norðurlandi. Dettifossvegur er lokaður.
Á Austurlandi er hálka, snjóþekja og hálkublettir. Ófært er á Öxi. Hálka eða hálkublettir eru með suðausturströndinni.
Breiðafjarðarferjan Baldur
Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.
Hálendisvegir
Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.