Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 7.6.2018

7.6.2018 8:47

Framkvæmdir á Höfuðborgarsvæðinu

Í dag, fimmtudaginn 7. júní er stefnt að því að fræsa og malbika hægri akrein og öxl á Vesturlandsvegi í átt að Mosfellsbæ, frá hringtorgi við Korpúlfsstaðaveg að hringtorgi við Skarhólabraut. Þrengt verður um eina akrein og búast má við lítilsháttar umferðartöfum.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli 06:00 og 15:00.


Aðfaranótt föstudags 8. júní er stefnt að því að malbika báðar akreinar á Bústaðarvegi, frá gatnamótum við Suðurhlíð að brú yfir Kringlumýrabraut. Þrengt verður í eina akrein á meðan framkvæmdum stendur. Búast má við lítilsháttar umferðartöfum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli 19:00 og 07:00.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Akstursbann á hálendisvegum

Akstursbann er nú á fjölmörgum hálendisvegum og -slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Því miður ber talsvert á því að ökumenn virði ekki merkingar um þessar lokanir sem settar eru á til að hlífa bæði vegunum sjálfum og náttúrunni í kringum þá fyrir átroðningi og skemmdum sem auðveldlega verða á þessum árstíma. Því er rétt að árétta að það er lögbrot að fara inn á veg framhjá merkinu allur akstur bannaður. Sjá nánar hér

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.