Umferðarþjónusta - Tilkynning - 7.12.2017
Færð og aðstæður
Það er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á vegum á Suður- og Vesturlandi og skafrenningur á fjallvegum.Á Vestfjörðum er hálka eða snjóþekja á flestum leiðum, sumstaðar skafrenningur. Ófært er á Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði. Eins er ófært norður í Árneshrepp.
Hálka eða hálkublettir eða snjóþekja er á vegum á Norður- og Norðausturlandi og víða éljagangur og skafrenningur. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Siglufjarðarvegi. Þungfært er á Hólasandi og Dettifossvegur er ófær.
Það er hálka eða snjóþekja á vegum á Austurlandi og víða él og skafrenningur á fjallvegum. Þungfært og stórhríð er á Fjarðarheiði. Ófært er á Öxi og Breiðdalsheiði sem og á Vatnsskarði eystra. Mjög hvasst er í Hamarsfirði og bara almennt á Austfjörðum. Snjóþekja eða hálka er með suðausturströndinni og mjög hvasst og skafrenningur..
Vinna á Miklubraut í dag 7. des.
Unnið er í dag þriðjudaginn 7. desember frá kl. 09:15 og fram eftir degi við að taka niður öryggisgirðingar á Miklubraut milli Réttarholtsvegar og Grensásvegar.
Hraði um vinnusvæðið er lækkaður í 50 km/klst. og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og virða merkingar.
Tafir
Það verða tafir á vegi 31 Skálholtsvegi við Hvítárbrú við Iðu 7. desember
frá kl.16:00 til 19:00
Breiðafjarðarferjan Baldur
Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.
Hálendisvegir
Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.