Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 7.12.2017

7.12.2017 21:55

Ábendingar frá veðurfræðingi kl: 14:00

Litur gulur.

Hvöss norðvestanátt með éljalofti og skafrenningi frá Höfn til norðurs að Vopnafirði. Hvassast er í Hamarsfirði, en blint getur verið á köflum í skafrenningi á fjallvegum á Austfjörðum og Austurlandi.

Færð og aðstæður

Á Suður- og Vesturlandi eru vegir víða hvar greiðfærir en þó er eitthvað um hálku eða hálkubletti. 

Á Vestfjörðum er hálka eða snjóþekja á flestum leiðum. Ófært er norður í Árneshrepp. 

Hálka eða hálkublettir eru á vegum  á Norðvesturlandi en á Norðausturlandi er hálka og víða er éljagangur og skafrenningur. Þæfingur og skafrenningur er á Víkurskarði og Grenivíkurvegi. Ófært er á Dettifossvegi.

Á Austurlandi er ófært um Fjarðarheiði þar er stórhríð og ekkert ferðaveður, ófært er upp að Norðfjarðargöngum Eskifjarðar megin. Þæfingur og stórhríð er á Möðrudalsöræfum og Fagradal,  þungfært og stórhríð er í Fannadal annars er víða hálka eða snjóþekja og mikill skafrenningur. Ófært er á Öxi og Breiðdalsheiði.
Snjóþekja eða hálka er með suðausturströndinni og mjög hvasst og sumstaðar skafrenningur.

Vinna á Miklubraut í dag 7. des.

Unnið er í dag þriðjudaginn 7. desember frá kl. 09:15 og fram eftir degi við að taka niður öryggisgirðingar á Miklubraut milli Réttarholtsvegar og Grensásvegar.

Hraði um vinnusvæðið er lækkaður í 50 km/klst. og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og virða merkingar.

Tafir

Það verða tafir á vegi 31 Skálholtsvegi við Hvítárbrú við Iðu 7. desember frá kl.16:00 til 19:00

Breiðafjarðarferjan Baldur

Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og  á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.

Hálendisvegir

Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.