Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 6.6.2018

6.6.2018 8:30

Framkvæmdir á Höfuðborgarsvæðinu

Í dag, miðvikudaginn 6. júní verður unnið að því að malbika tvær akreinar á Reykjanesbraut, frá hringtorgi við Arnarnesveg í átt að Vífilsstöðum.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli 08:00 og 20:00.

Einnig verða fræstar tvær akreinar á Innnesvegi á Akranesi, veginum verður lokað og hjáleiðir merktar. Búast má við lítilsháttar umferðartöfum.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli 09:00 og 17:00.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Akstursbann á hálendisvegum

Akstursbann er nú á fjölmörgum hálendisvegum og -slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Því miður ber talsvert á því að ökumenn virði ekki merkingar um þessar lokanir sem settar eru á til að hlífa bæði vegunum sjálfum og náttúrunni í kringum þá fyrir átroðningi og skemmdum sem auðveldlega verða á þessum árstíma. Því er rétt að árétta að það er lögbrot að fara inn á veg framhjá merkinu allur akstur bannaður. Sjá nánar hér

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.