Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 6.12.2017

6.12.2017 8:29

Færð og aðstæður

Það er snjóþekja eða hálka á vegum á Suðurlandi og víða éljagangur. Þæfingsfærð er yfir Reynisfjall við Vík en þar snjóar.

Á Vesturlandi er hálka eða hálkublettir og víða éljagangur en á Vestfjörðum er víða strekkingsvindur og skafrenningur og hálka eða snjóþekja á flestum leiðum. Þæfingsfærð  er á  Steingrímsfjarðarheiði og Klettshálsi og ófært á Þröskuldum en þar er unnið að hreinsun. Vegurinn fyrir Hrafnseyrarheiði er lokaður.

Hálka eða hálkublettir eða snjóþekja er á vegum  á Norður- og Norðausturlandi og víða éljagangur. Siglufjarðarvegur er ófær eins og er en þar er unnið að hreinsun.

Það er hálka eða snjóþekja á vegum á Austurlandi og með suðausturströndinni er einnig snjóþekja.

Framkvæmdir á Miklubraut

Í dag miðvikudaginn 6. desember er unnið við að taka niður öryggisgirðingar á Miklubraut milli Reykjanesbrautar og Grensásvegar. Unnið er frá kl 09.15 og fram eftir degi.

Hraði um vinnusvæðið er lækkaður í 50 km/klst. og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og virða merkingar.

Breiðafjarðarferjan Baldur

Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og  á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.

Hálendisvegir

Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.