Tilkynning um færð og ástand
Umferðarþjónusta - Tilkynning - 6.12.2017
Ábending frá veðurfræðingi
Suðaustanlands verður sums staðar talsverður bylur og
takmarkað skyggni s.s. frá Skaftafelli og að Jökulsárlóni frá því seint
í nótt og fram eftir morgni að mikið rofar til. Hviður 30-35 m/s staðbundið í Öræfum fram yfir miðjan dag.
Færð og aðstæður
Það eru hálkublettir á Höfuðborgarsvæðinu og hálka á vegum á Reykjanesi. Snjóþekja eða hálka er á Suðurlandi og víða éljagangur. Þungfært er yfir Reynisfjall við Vík en þar snjóar.Á Vesturlandi er hálka eða hálkublettir en á Vestfjörðum er víða strekkingsvindur og skafrenningur og hálka eða snjóþekja. Þæfingsfærð er á Kleifaheiði og Steingrímsfjarðarheiði, þungfært á Klettshálsi og ófært á Þröskuldum. Vegurinn fyrir Hrafnseyrarheiði er lokaður.
Hálka eða hálkublettir eða snjóþekja er á vegum á Norður- og Norðausturlandi og víða éljagangur. Siglufjarðarvegur er ófær eins og er en þar er unnið að hreinsun.
Það er hálka eða snjóþekja á vegum á Austurlandi og með suðausturströndinni er einnig snjóþekja.
Breiðafjarðarferjan Baldur
Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.
Hálendisvegir
Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.