Umferðarþjónusta - Tilkynning - 6.12.2017
Ábendingar frá veðurfræðingi
Litur gulur: 6. desember kl 10:40
Talsvert
hefur snjóað í Mýrdal í nótt og í morgun. Þar rofar til, en um leið
hvessir og þá verður fljótt nokkurt kóf og blinda. Einkum á milli
Sólheimasands og Víkur. Síðdegis hvessir líka af norðaustri undir Eyjafjöllum
og þar hviður allt að 35 m/s. Í Öræfum dregur heldur úr vindi, þar er
hiti rétt yfir frostmarki og síður skafrenningur.
Færð og aðstæður
Það er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á vegum á Suður- og Vesturlandi og víða skafrenningur. Hvasst er á Snæfellsnesi.Það er töluverður éljagangur, strekkingsvindur og skafrenningur á Vestfjörðum og hálka eða snjóþekja á flestum leiðum. Vegurinn fyrir Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði er ófær. Eins er ófært norður í Árneshrepp.
Hálka eða hálkublettir eða snjóþekja er á vegum á Norður- og Norðausturlandi og víða éljagangur og skafrenningur. Dettifossvegur er ófær.
Það er hálka eða snjóþekja á vegum á Austurlandi og víða él og skafrenningur á fjallvegum. Snjóþekja eða hálka er með suðausturströndinni, skafrenningur og sumsstaðar snjókoma.
Framkvæmdir á Miklubraut
Í dag miðvikudaginn 6.
desember er unnið við að taka niður öryggisgirðingar á
Miklubraut milli Reykjanesbrautar og Grensásvegar. Unnið er frá kl 09.15 og fram eftir degi.
Hraði um vinnusvæðið er lækkaður í 50 km/klst. og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og virða merkingar.
Breiðafjarðarferjan Baldur
Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.
Hálendisvegir
Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.