Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 6.12.2017

6.12.2017 12:01

Ábendingar frá veðurfræðingi

Litur gulur:  6. desember kl 10:40

Talsvert hefur snjóað í Mýrdal í nótt og í morgun.  Þar rofar til, en um leið hvessir og þá verður fljótt nokkurt kóf og blinda.  Einkum á milli Sólheimasands og Víkur. Síðdegis hvessir líka af norðaustri undir Eyjafjöllum og þar hviður allt að 35 m/s.  Í Öræfum dregur heldur úr vindi, þar er hiti rétt yfir frostmarki og síður skafrenningur.

Færð og aðstæður

Það er snjóþekja eða hálka á vegum á Suðurlandi og víða éljagangur og skafrenningur fyrir austan Selfoss.

Á Vesturlandi er hálka eða hálkublettir og víða éljagangur. Hvasst er á Snæfellsnesi og er Fróðárheiði lokuð.

Það er víða éljagangur, strekkingsvindur og skafrenningur á Vestfjörðum og hálka eða snjóþekja á flestum leiðum. Vegurinn fyrir Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði er ófær.  Eins er ófært norður í Árneshrepp. 

Hálka eða hálkublettir eða snjóþekja er á vegum  á Norður- og Norðausturlandi og víða éljagangur. Þæfingsfærð er á Siglufjarðarvegi og skafrenningur. Dettifossvegur er ófær.

Það er hálka eða snjóþekja á vegum á Austurlandi og víða él og skafrenningur á fjallvegum. Þæfingsfærð er á Öxi.  Snjóþekja eða hálka er með suðausturströndinni, skafrenningur og sumsstaðar snjókoma.

Framkvæmdir á Miklubraut

Í dag miðvikudaginn 6. desember er unnið við að taka niður öryggisgirðingar á Miklubraut milli Reykjanesbrautar og Grensásvegar. Unnið er frá kl 09.15 og fram eftir degi.

Hraði um vinnusvæðið er lækkaður í 50 km/klst. og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og virða merkingar.

Breiðafjarðarferjan Baldur

Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og  á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.

Hálendisvegir

Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.