Umferðarþjónusta - Tilkynning - 5.6.2018
Lokun á Ólafsfjarðarvegi
Ólafsfjarðarvegur er lokaður vegna umferðaróhapps á móts við Freyjulund. Hjáleið er um Bakkaveg nr. 812.
Framkvæmdir á Höfuðborgarsvæðinu
Í dag þriðjudaginn 5. júní verður unnið að því að fræsa og malbika akrein á Breiðholtsbraut, frá hringtorgi við Rauðavatn að gatnamótum við Brekknaás. Búast má við lítilsháttar umferðartöfum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli 11:00 og 18:00.
Einnig verður í dag unnið að viðgerðum í Ánanaustum, við hringtorg við Hringbraut. Þrengt verður að umferð við vinnusvæðin og umferð stýrt framhjá ef þarf á meðan framkvæmdum stendur. Í framhaldi af því verður viðgerðarvinna á Hringbraut, frá Meistaravöllum og í átt að Melatorgi. Vinnan mun eiga sér stað fram eftir degi.
Aðfaranótt miðvikudags 6. júní er stefnt að því að malbika
hægri akrein og öxl á Reykjanesbraut, á milli gatnamóta við Krýsuvíkurveg og
beygjuramps frá Strandgötu. Vegurinn verður
lokaður á meðan og hjáleið verður um Vallarhverfi.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli 19:00 og 07:00.
Miðvikudaginn 6. júní er stefnt að því að malbika
tvær akreinar á Reykjanesbraut, frá hringtorgi við Arnarnesveg í átt að
Vífilsstöðum.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli 08:00 og 20:00.
Einnig verða fræstar tvær
akreinar á Innnesvegi á Akranesi, veginum verður lokað og hjáleiðir merktar.
Búast má við lítilsháttar umferðartöfum.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli 09:00 og 17:00.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna
aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög
nálægt akstursbrautum.
Akstursbann á hálendisvegum
Akstursbann er nú á fjölmörgum hálendisvegum og -slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Því miður ber talsvert á því að ökumenn virði ekki merkingar um þessar lokanir sem settar eru á til að hlífa bæði vegunum sjálfum og náttúrunni í kringum þá fyrir átroðningi og skemmdum sem auðveldlega verða á þessum árstíma. Því er rétt að árétta að það er lögbrot að fara inn á veg framhjá merkinu allur akstur bannaður. Sjá nánar hér
Viðgerð á Miðfjarðarárbrú
Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.