Umferðarþjónusta - Tilkynning - 5.12.2017
Ábending frá veðurfræðingi
5. desember kl. 21:15 - Litur gulur
Það snjóar í nótt víða
norðanlands og Vestfjörðum. Einnig setur niður nokkurn snjó
suðaustanlands, allt að 20-30 sm. Sums staðar verður talsverður bylur og
takmarkað skyggni s.s. frá Skaftafelli og að Jökulsárlóni frá því seint
í nótt og fram eftir morgni að mikið rofar til. Hviður 30-35 m/s staðbundið í Öræfum fram yfir miðjan dag.
Færð og aðstæður
Það eru hálkublettir víða á Suðurlandi, og sums staðar hálka, einkum á útvegum. Eins er víða nokkur hálka á Vesturlandi, ekki síst á fjallvegum.Það hefur éljað á Vestfjörðum, og þar er víða strekkingsvindur og skafrenningur. Víðast hvar er ýmist hálka eða snjóþekja en þæfingsfærð er á Steingrímsfjarðarheiði og þungfært á Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði.
Á Norður- og Norðausturlandi er víða éljagangur og sums staðar skefur. Færð kann því að spillast þegar þjónustu lýkur.
Það er hálka eða hálkublettir á flestum vegum á Austurlandi. Með suðausturströndinni hefur éljað og þar er nú víðast nokkur hálka eða snjóþekja.
Breiðafjarðarferjan Baldur
Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.
Hálendisvegir
Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.