Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 5.12.2017

5.12.2017 18:10

Færð og aðstæður

Það eru hálkublettir víða á Suðurlandi, og sums staðar hálka, einkum á útvegum. Eins er víða nokkur hálka á Vesturlandi, ekki síst á fjallvegum.

Víða hefur éljað á Vestfjörðum og þar er ýmist hálka eða snjóþekja.

Á Norðurlandi er víðast hvar hált en við Eyjafjörð og í Þingeyjarsýslum hefur éljað og þar er sums staðar snjóþekja á vegum.

Heldur minni hálka er á Austur- og Suðausturlandi, þar eru víða aðeins hálkublettir eða jafnvel alveg greiðfært.

Breiðafjarðarferjan Baldur

Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og  á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.

Hálendisvegir

Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.