Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 5.12.2017

5.12.2017 14:46

Vinna í Ártúnsbrekku og við Miklubraut

Í dag, þriðjudaginn 5. desember, er unnið við að taka niður öryggisgirðingar í Ártúnsbrekku og við Miklubraut. Hraði um vinnusvæðið er lækkaður í 50 km/klst. og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og virða merkingar.

Færð og aðstæður

Það er hálka víða á Suðurlandi, síst þó á þjóðvegi 1.

Hálka eða hálkublettir eru einnig á flestum vegum á Vesturlandi og Vestfjörðum, raunar sums staðar snjóþekja þar sem éljar.

Á Norðurlandi er víðast hvar hált en við Eyjafjörð og í Þingeyjarsýslum hefur éljað og þar er sums staðar snjóþekja á vegum.

Minni hálka er á Austur- og Suðausturlandi, þar eru víða aðeins hálkublettir eða jafnvel alveg greiðfært.

Breiðafjarðarferjan Baldur

Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og  á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.

Hálendisvegir

Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.