Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 5.12.2017

5.12.2017 13:18

Framkvæmdir

Í dag þriðjudaginn 5. desember frá kl. 09:15 og fram eftir degi er unnið við að taka niður öryggisgirðingar í Ártúnsbrekku og á Miklubraut.

Hraði um vinnusvæðið er lækkaður í 50 km/klst. og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og virða merkingar.

Færð og aðstæður

Á Suðurlandi er hálka en hálkublettir eru á Hellisheiði og Þrengslum.

Á Vesturlandi og Vestfjörðum er hálka.

Á Norðurlandi er hálka. Eitthvað er um éljagang á Norðausturlandi.

Á Austurlandi er víða greiðfært á Héraði en éljagangur mjög víða, hálka og éljagangur er á Möðrudalsöræfum og hálkublettir eru á Fjarðarheiði, Fagradal og með ströndinni.

Á Suðausturlandi er að mestu greiðfært en hálka og hálkublettir eru nokkuð víða. 

Breiðafjarðarferjan Baldur

Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og  á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.

Hálendisvegir

Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.