Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 5.12.2017

5.12.2017 6:56

Færð og aðstæður

Á Suðurlandi er hálka en hálkublettir eru á Hellisheiði og Þrengslum.

Á Vesturlandi og Vestfjörðum er hálka.

Á Norðurlandi er hálka. Með Norðausturströndinni er snjóþekja og éljagangur en þæfingur er á Hólaheiði og  Hófaskarði.

Á Austurlandi er víða greiðfært á Héraði en hálka er á Möðrudalsöræfum og hálkublettir með ströndinni.

Á Suðausturlandi er að mestu greiðfært en hálka og hálkublettir eru frá Kvísker í Vík.

Breiðafjarðarferjan Baldur

Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og  á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.

Hálendisvegir

Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.