Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 4.6.2018

4.6.2018 20:21

Lokað

Vesturlandsvegur er lokaður við Saltvík á Kjalarnesi vegna umferðaróhapps í 2 tíma í það minsta. Hjáleið er um veg númer 48 Kjósarskarðsveg.

Framkvæmdir á Höfuðborgarsvæðinu

Í dag, mánudaginn 4. júní eru malbiksframkvæmdir á nokkrum köflum á Miklubraut og aðliggjandi römpum til kl. 22:00.

Malbiksviðgerðir verða einnig hjá Ánanaustum í átt að Seltjarnarnesi seinni partinn í dag.

Í kvöld verður svo farið í að malbika ramp frá Reykjanesbraut upp á Breiðholtsbraut og í kvöld og nótt er stefnt að því að malbika báðar akreinar á Breiðholtsbraut, frá rampi við Reykjanesbraut til austurs. Breiðholtsbraut verður lokuð á meðan og hjáleið verður um Stekkjarbakka. Búast má við lítilsháttar umferðartöfum. Áætlað er að vinnan standi yfir til klukkan sjö í fyrramálið.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Akstursbann á hálendisvegum

Akstursbann er nú á fjölmörgum hálendisvegum og -slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Því miður ber talsvert á því að ökumenn virði ekki merkingar um þessar lokanir sem settar eru á til að hlífa bæði vegunum sjálfum og náttúrunni í kringum þá fyrir átroðningi og skemmdum sem auðveldlega verða á þessum árstíma. Því er rétt að árétta að það er lögbrot að fara inn á veg framhjá merkinu allur akstur bannaður. Sjá nánar hér

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.