Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 4.6.2018

4.6.2018 8:16

Framkvæmdir

Mánudaginn 4. júní er stefnt að því að  malbika innstu akrein á Miklubraut, frá Brú yfir Skeiðarvog að Brú yfir Reykjanesbraut. Þrengt verður um tvær akreinar á meðan malbikun stendur. Búast má við lítilsháttar umferðartöfum. Áætlað er að malbikunin standi yfir frá kl. 09:00 til kl. 15:00.

Einnig er stefnt að því að fræsa og malbika beygjuakrein frá Miklubraut yfir á Kringlumýrarbraut.
Búast má við lítilsháttar umferðartöfum.
Áætlað er að fræsing standi yfir milli kl. 09:00 til 12:00 og malbikunin frá kl. 15:00 til kl. 19:00.

Lokað

Einnig verður fræst beygjuakrein frá Kringlumýrarbraut að Háaleitisbraut. Beygjuakreininni verður lokað og þrengt verður í eina akrein á Kringlumýrarbraut og Háaleitisbraut.

Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 10:00 til kl. 14:00.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Akstursbann á hálendisvegum

Akstursbann er nú á fjölmörgum hálendisvegum og -slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Því miður ber talsvert á því að ökumenn virði ekki merkingar um þessar lokanir sem settar eru á til að hlífa bæði vegunum sjálfum og náttúrunni í kringum þá fyrir átroðningi og skemmdum sem auðveldlega verða á þessum árstíma. Því er rétt að árétta að það er lögbrot að fara inn á veg framhjá merkinu allur akstur bannaður.

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.