Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 4.12.2017

4.12.2017 20:07

Færð og aðstæður

Á Suðurlandi er hálka á Mosfellsheiði og hálkublettir á Hellisheiði, Þrengslum og í uppsveitum.

Það hefur myndast töluverð hálka á vegum á Vesturlandi með kvöldinu og er nú víðast hálka eða hálkublettir.

Á Vestfjörðum er hálka eða snjóþekja á flestum leiðum. Þoka er á Þröskuldum og Hrafnseyrarheiði.

Hálkublettir eða hálka  er á flestum leiðum á Norðurlandi.

Á Austur- og Suð-austurlandi er víðast greiðfært þótt hálkublettir eða hálka séu á köflum. 

Breiðafjarðarferjan Baldur

Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og  á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.

Hálendisvegir

Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.