Tilkynning um færð og ástand
Umferðarþjónusta - Tilkynning - 4.12.2017
Færð og aðstæður
Á Suðurlandi eru flestar aðalleiðir greiðfærar en hálkublettir á útvegum.Það eru flestar aðalleiðir á Vesturlandi greiðfærar en hálkublettir eða hálka eftir því sem norðar dregur. Þoka er á Holtavörðuheiði og Fróðárheiði.
Á Vestfjörðum er snjóþekja eða hálka á flestum leiðum. Éljagangur er á sunnanverðum Vestfjörðum og þoka á Þröskuldum og Hrafnseyrarheiði.
Hálkublettir eða hálka er á flestum leiðum á Norðurlandi og éljagangur á Þverárfjalli og á Öxnadalsheiði.
Á Austur- og Suð-austurlandi er víðast greiðfært þótt hálkublettir eða hálka séu á köflum.
Breiðafjarðarferjan Baldur
Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.
Hálendisvegir
Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.