Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 4.12.2017

4.12.2017 16:09

Færð og aðstæður

Á Suðurlandi eru flestar aðalleiðir greiðfærar en hálkublettir á útvegum. 

Það eru flestar aðalleiðir á Vesturlandi greiðfærar en hálkublettir eða hálka eftir því sem norðar dregur. Þoka er á Fróðárheiði.

Á Vestfjörðum er snjóþekja eða hálka á flestum leiðum. Éljagangur er á sunnanverðum Vestfjörðum.

Hálkublettir eða hálka  er á flestum leiðum á Norðurlandi og éljagangur á Þverárfjalli og á Öxnadalsheiði.  

Á Austur- og Suð-austurlandi er víðast greiðfært þótt hálkublettir eða hálka séu á köflum. 

Breiðafjarðarferjan Baldur

Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og  á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.

Hálendisvegir

Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.