Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 4.12.2017

4.12.2017 7:40

Færð og aðstæður

Á Suðurlandi eru aðalleiðir greiðfærar en hálkublettir á útvegum. Flughálka er norðan við Flúðir. 

Á Vesturlandi eru flestar aðalleiðir greiðfærar en hálkublettir eða hálka eftir því sem norðar dregur. Snjóþekja er á Holtavörðuheiði. 

Á Vestfjörðum er snjóþekja eða hálka á flestum leiðum. Éljagangur er á sunnan og austanverðum Vestfjörðum.

Á Norðurlandi eru hálkublettir á flestum leiðum en hálka í Öxarfirði. Éljagangur er við Mývatn en snjókoma í Skagafirði.  

Á Austur- og Suð-austurlandi er víðast greiðfært þótt hálkublettir séu á köflum. Snjóþekja er á Öxi og Breiðdalsheiði. 

Breiðafjarðarferjan Baldur

Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og  á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.

Hálendisvegir

Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.