Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 31.5.2018

31.5.2018 8:08

Malbikun á Höfuðborgarsvæðinu

í dag, fimmtudaginn 31. maí er stefnt að því að malbika báðar akreinar í hvora átt á Stekkjarbakka, meðfram Elliðarárdalnum.  Kaflanum verður lokað, hjáleið verður um Breiðholtsbraut að vestan og Fálkabakka að austan. Búast má við lítilsháttar umferðartöfum á með á framkvæmd stendur á milli kl. 9:00 og kl. 17:00.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Akstursbann á hálendisvegum

Akstursbann er nú á fjölmörgum hálendisvegum og -slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Því miður ber talsvert á því að ökumenn virði ekki merkingar um þessar lokanir sem settar eru á til að hlífa bæði vegunum sjálfum og náttúrunni í kringum þá fyrir átroðningi og skemmdum sem auðveldlega verða á þessum árstíma. Því er rétt að árétta að það er lögbrot að fara inn á veg framhjá merkinu allur akstur bannaður.

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum þarf sums staðar að takmarka ásþunga umfram það sem almennt gerist. Sjá nánar hér.