Tilkynning um færð og ástand
Umferðarþjónusta - Tilkynning - 3.12.2017
Færð og aðstæður
Hálkublettir eru allvíða á Suðurlandi, jafnvel sums staðar hálka, en þó er greiðfært bæði á Hellisheiði og í Þrengslum.Vegir eru víðast greiðfærir á Vesturlandi og á Vestfjörðum þótt hálkublettir séu á nokkrum fjallvegum og fáfarnari leiðum. Sama er að segja um Norðurland, allt austur í Eyjafjörð en í Þingeyjarsýslum er nokkuð meiri hálka.
Á Austur- og Suð-austurlandi er víðast greiðfært þótt hálkublettir séu á köflum.
Breiðafjarðarferjan Baldur
Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.
Hálendisvegir
Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.