Tilkynning um færð og ástand
Umferðarþjónusta - Tilkynning - 3.12.2017
Færð og aðstæður
Hálka eða hálkublettir eru allvíða á Suðurlandi en þó er autt bæði á Hellisheiði og í Þrengslum. Hálka er á Reykjanesbraut.Það er hálka á Bröttubrekku en annars eru vegir víðast greiðfærir á Vesturlandi og eins á Vestfjörðum þótt hálkublettir séu á fáeinum fjallvegum og fáfarnari leiðum. Sama er að segja um Norðurland, allt austur í Eyjafjörð en í Þingeyjarsýslum er ívið meiri hálka eða jafnvel sums staðar snjóþekja.
Á Austur- og Suðausturlandi er víðast greiðfært þótt hálkublettir séu á köflum.
Breiðafjarðarferjan Baldur
Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.
Hálendisvegir
Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.