Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 30.8.2018

30.8.2018 9:03

Ábendingar frá veðurfræðingi

30. ágúst kl 09.00

Litur: Gulur

Hvessir í dag, einkum vestanlands frá skilum lægðar.  SA-átt og hviður allt að 30 m/s á norðanverðu Snæfellsnesi frá kl. 12  Einnig hviður annað slagið undir Hafnarfjalli frá því kl. 15. Gengur niður í kvöld. Yfir Kaldadal verður feykihvasst síðdegis og í kvöld og þar sandfok. 

Framkvæmdir við Esjumela

Á næstu vikum verður unnið að byggingu hringtorgs og undirganga fyrir gangandi auk vega- og stígagerðar á Esjumelum við Norðurgrafarveg og verður umferð um Vesturlandsveg beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst og eru ökumenn hvattir til að virða merkingar á vinnusvæðinu.

Þingvallavegur lokaður

Þingvallavegur (36) verður lokaður allri umferð milli þjónustumiðstöðvarinnar og eystri gatnamótanna við Vallaveg (361) fram í október. Hjáleið er um Vallaveg (361) Sjá nánar hér

Kísilvegurinn (87) er lokaður

Kísilvegurinn, þjóðvegur 87 er lokaður ótímabundið vegna framkvæmda. Hjáleiðir eru merktar á svæðinu. 

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og því er umferð þar stýrt með ljósum. Brúin hefur reynst í verra ástandi en búist var við og nú er áætlað að vinnan standi fram í síðari hluta september.