Umferðarþjónusta - Tilkynning - 29.5.2018
Brunaæfing í
Norðfjarðargöngum í kvöld
Í kvöld, þriðjudagskvöldið 29. maí verður haldin brunaæfing í Norðfjarðargöngum og verður göngunum lokað á meðan eða frá kl. 19:30 til 22:30.
Fræsingar á Höfuðborgarsvæðinu
Í dag, þriðjudaginn 29. maí er stefnt að því að malbika tvær akreinar í hvora átt á Vesturlandsvegi, á milli hringtorgs við Langatanga og hringtorgs við Reykjaveg. Þrengt verður um eina akrein, að auki verður lokað akrein frá hringtorgi við Þverholt-Háholt niður á Vesturlandsveg vegna þrengsla. Búast má við lítilsháttar umferðartöfum milli kl. 9:00 og 17:00.
Einnig er stefnt að því í kvöld að fræsa báðar akreinar á Bústaðarvegi, frá gatnamótum við Suðurhlíð að gatnamótum við brú yfir Kringlumýrabraut. Þrengt verður í eina akrein og búast má við lítilsháttar umferðartöfum milli kl. 19:00 og kl. 02:00.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Akstursbann á hálendisvegum
Akstursbann er nú á fjölmörgum hálendisvegum og -slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Því miður ber talsvert á því að ökumenn virði ekki merkingar um þessar lokanir sem settar eru á til að hlífa bæði vegunum sjálfum og náttúrunni í kringum þá fyrir átroðningi og skemmdum sem auðveldlega verða á þessum árstíma. Því er rétt að árétta að það er lögbrot að fara inn á veg framhjá merkinu allur akstur bannaður.
Viðgerð á Miðfjarðarárbrú
Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.