Umferðarþjónusta - Tilkynning - 28.8.2018
Suðurlandsvegur lokaður við Virkisá
Suðurlandsvegur verður lokaður um tíma við Virkisá skammt austan við Skaftafell vegna umferðarslyss.
Malbikun á Reykjanesbraut
Miðvikudaginn 29. ágúst er stefnt á að malbika báðar akreinar á Reykjanesbraut við álverið. Annarri akreininni verður lokað í einu og umferð stýrt í gegnum vinnusvæðið. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 08:00 og 22:00.
Vegfarendur
eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.
Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Framkvæmdir við Esjumela
Á næstu vikum verður unnið að byggingu hringtorgs og undirganga fyrir gangandi auk vega- og stígagerðar á Esjumelum við Norðurgrafarveg og verður umferð um Vesturlandsveg beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst og eru ökumenn hvattir til að virða merkingar á vinnusvæðinu.