Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 28.5.2018

28.5.2018 8:06

Fræsingar á Höfuðborgarsvæðinu

Í dag, mánudaginn 28. maí er stefnt að því að fræsa ramp frá Breiðholtsbraut niður að Reykjanesbraut. Rampinum verður lokað og hjáleið verður um Dalveg.

Einnig er stefnt að því að fræsa ramp frá Reykjanesbraut upp Breiðholtsbraut. Rampinum verður lokað og hjáleið verður um Stekkjarbakka.

Búast má við lítilsháttar umferðartöfum frá kl. 9.00 til kl. 18.00.

Vegfarendur eru beðnir að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Brunaæfing í Norðfjarðargöngum á morgun

Þriðjudagskvöldið 29. maí verður haldin brunaæfing í Norðfjarðargöngum og verður göngunum lokað á meðan eða frá kl. 19:30 til 22:30.

Akstursbann á hálendisvegum

Akstursbann er nú á fjölmörgum hálendisvegum og -slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Því miður ber talsvert á því að ökumenn virði ekki merkingar um þessar lokanir sem settar eru á til að hlífa bæði vegunum sjálfum og náttúrunni í kringum þá fyrir átroðningi og skemmdum sem auðveldlega verða á þessum árstíma. Því er rétt að árétta að það er lögbrot að fara inn á veg framhjá merkinu allur akstur bannaður.

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum þarf sums staðar að takmarka ásþunga umfram það sem almennt gerist. Sjá nánar hér.