Tilkynning um færð og ástand
Umferðarþjónusta - Tilkynning - 27.8.2018
Ábending frá veðurfræðingi
27. ágúst kl. 8.45Litur: Gulur
Rétt að vekja athygli á austan vindstreng sem gengur inn á landið úr suðri.
Undir Eyjafjöllum má gera ráð fyrir vindhviðum allt að 30 m/s á milli kl. 12 og
16 í dag.
Framkvæmdir við Esjumela
Í dag mánudaginn 27. ágúst frá kl 6.00 er unnið að byggingu hringtorgs og undirganga fyrir gangandi auk vega- og stígagerðar á Esjumelum við Norðurgrafarveg og verður umferð um Vesturlandsveg beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu.
Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst og eru ökumenn hvattir til að virða merkingar á vinnusvæðinu.