Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 25.8.2018

25.8.2018 9:21

Þingvallavegur lokaður

Þingvallavegur (36) verður lokaður allri umferð milli þjónustumiðstöðvarinnar og eystri gatnamótanna við Vallaveg (361) fram í október. Hjáleið er um Vallaveg (361) Sjá nánar hér

Umferðartafir

Laugardaginn 25. ágúst mætti búast við tímabundnum töfum á umferð í gegnum Laugarvatn á tímabilinu frá 15:30 til 16:30 og aftur frá 18:00 til 20:00.

Tímabundin lokun verður í vesturátt frá Biskupstungnabraut að Laugarvatni á tímabilinu 15:45 til 16:30. ( Hægt að keyra niður Biskupstungnabraut og upp frá Svínavatni eða um Reykjaheiði ) Opið verður fyrir umferð frá Laugarvatni að Biskupstungnabraut.

Lokað verður fyrir umferð í báðar áttir frá Svínavatni að Laugarvatni á tímabilinu 18:30 til 19:30 en þá verður hægt að koma að Laugarvatni lengri leiðina yfir Reykjaheiði.

Lokanir eru til að tryggja öryggi keppendanna og annarra vegfarenda.

Daganna 23. – 25. ágúst verður Reykjavíkur rallý  í gangi og búast má við einhverjum umferðar töfum á fáfarnari leiðum á Vesturlandi. Sjá nánar hér .

Framkvæmdir við Esjumela

Mánudaginn 27. ágúst um kl 6.00 verður hafin vinna við byggingu hringtorgs og undirganga fyrir gangandi auk vega- og stígagerðar á Esjumelum við Norðurgrafarveg og verður umferð um Vesturlandsveg beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu.

Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst og eru ökumenn hvattir til að virða merkingar á vinnusvæðinu.

Kísilvegurinn (87) er lokaður

Kísilvegurinn, þjóðvegur 87 er lokaður ótímabundið vegna framkvæmda. Hjáleiðir eru merktar á svæðinu. 

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og því er umferð þar stýrt með ljósum. Brúin hefur reynst í verra ástandi en búist var við og nú er áætlað að vinnan standi fram í síðari hluta september.