Umferðarþjónusta - Tilkynning - 25.6.2018
Veðurviðvörun
Vestan og suðvestan hvassviðri eða stormur, 15-23 m/s, um landið austanvert en dregur úr vindi þar eftir hádegi.
Malbikun
Í dag, mánudaginn 25. júní er verið að malbika milli hringtorga við Innnesveg og svo aðra akrein á Innnesvegi. Hjáleiðir eru merktar. Búast má við lítilsháttar umferðartöfum til kl. átta í kvöld. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Lokanir í jarðgöngum undir Breiðadalsheiði
Vegna vinnu við vatnsvarnir verður Breiðadalsleggur (til/frá Önundarfirði) lokaður yfir nóttina virka daga, frá miðnætti til kl. 7:00. - Óljóst er hversu langan tíma þetta tekur en reikna má með megninu af júní. Þetta hefur ekki áhrif á umferð milli Súgandafjarðar og Skutulsfjarðar.
Hálendisvegir
Hálendisvegir eru óðum að opnast en engu að síður er enn akstursbann á allmörgum hálendisvegum og slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Rétt er að ítreka að það er lögbrot að fara inn á veg sem merktur er með skiltinu allur akstur bannaður. Sjá nánar hér
Viðgerð á Miðfjarðarárbrú
Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.