Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 24.8.2018

24.8.2018 13:51

Malbikun á Biskupstungnabraut (35)

Föstudaginn 24. ágúst er einnig stefnt á að malbika báðar akreinar á Biskupstungnabraut við Borg í Grímsnesi. Annarri akreininni verður lokað í einu og umferð stýrt í gegnum vinnusvæðið. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 12:00 til kl. 22:00.

Þingvallavegur lokaður

Þingvallavegur (36) verður lokaður allri umferð milli þjónustumiðstöðvarinnar og eystri gatnamótanna við Vallaveg (361) fram í október. Hjáleið er um Vallaveg (361) Sjá nánar hér

Umferðartafir

Laugardaginn 25. ágúst mætti búast við tímabundnum töfum á umferð í gegnum Laugarvatn á tímabilinu frá 15:30 til 16:30 og aftur frá 18:00 til 20:00.

Tímabundin lokun verður í vesturátt frá Biskupstungnabraut að Laugarvatni á tímabilinu 15:45 til 16:30. ( Hægt að keyra niður Biskupstungnabraut og upp frá Svínavatni eða um Reykjaheiði ) Opið verður fyrir umferð frá Laugarvatni að Biskupstungnabraut.

Lokað verður fyrir umferð í báðar áttir frá Svínavatni að Laugarvatni á tímabilinu 18:30 til 19:30 en þá verður hægt að koma að Laugarvatni lengri leiðina yfir Reykjaheiði.

Lokanir eru til að tryggja öryggi keppendanna og annarra vegfarenda.

Daganna 23. – 25. ágúst verður Reykjavíkur rallý  í gangi og búast má við einhverjum umferðar töfum á fáfarnari leiðum á Vesturlandi. Sjá nánar hér .

Kísilvegurinn (87) er lokaður

Kísilvegurinn, þjóðvegur 87 er lokaður ótímabundið vegna framkvæmda. Hjáleiðir eru merktar á svæðinu. 

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og því er umferð þar stýrt með ljósum. Brúin hefur reynst í verra ástandi en búist var við og nú er áætlað að vinnan standi fram í síðari hluta september.