Umferðarþjónusta - Tilkynning - 24.8.2018
Malbikun á Biskupstungnabraut (35)
Föstudaginn 24. ágúst verða malbikaðar báðar akreinar á Biskupstungnabraut við Reykholt, austan við hringtorg hjá Bjarkarbraut. Annarri akreininni verður lokað í einu og umferð stýrt í gegnum vinnusvæðið. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 09:00 til kl. 13:00.
Föstudaginn 24. ágúst er einnig stefnt á að malbika báðar akreinar á Biskupstungnabraut við Borg í Grímsnesi. Annarri akreininni verður lokað í einu og umferð stýrt í gegnum vinnusvæðið. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 12:00 til kl. 22:00.
Þingvallavegur lokaður
Þingvallavegur (36) verður lokaður allri umferð milli þjónustumiðstöðvarinnar og eystri gatnamótanna við Vallaveg (361) fram í október. Hjáleið er um Vallaveg (361) Sjá nánar hérUmferðartafir
Daganna 23 – 25 ágúst verður Reykjavíkur rallý í gangi og búast má við einhverjum umferðar töfum á fáfarnari leiðum á Vesturlandi. Sjá nánar hér .