Tilkynning um færð og ástand
Umferðarþjónusta - Tilkynning - 24.8.2018
Malbikun á Biskupstungnabraut (35)
Föstudaginn 24. ágúst verða malbikaðar báðar akreinar á Biskupstungnabraut við Reykholt, austan við hringtorg hjá Bjarkarbraut. Annarri akreininni verður lokað í einu og umferð stýrt í gegnum vinnusvæðið. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 09:00 til kl. 13:00.
Föstudaginn 24. ágúst er einnig stefnt á að malbika báðar akreinar á Biskupstungnabraut við Borg í Grímsnesi. Annarri akreininni verður lokað í einu og umferð stýrt í gegnum vinnusvæðið. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 12:00 til kl. 22:00.