Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 23.8.2018

23.8.2018 10:43

Malbikun á Biskupstungnabraut (35)

Fimmtudaginn 23. ágúst verða malbikaðar báðar akreinar á Biskupstungnabraut í gegnum Reykholt. Vegurinn er lokaður og hjáleiðir merktar. Umferð sem kemur að norðanverðu verður send í gegnum Bræðratunguveg yfir á Skeiða- og Hrunamannaveg en þeim sem eiga erindi inn í Reykholt er hleypt í gegn. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 09:00 til kl. 22:00.

Þingvallavegur lokaður

Þingvallavegur (36) verður lokaður allri umferð milli þjónustumiðstöðvarinnar og eystri gatnamótanna við Vallaveg (361) fram í október. Hjáleið er um Vallaveg (361) Sjá nánar hér

Kísilvegurinn (87) er lokaður

Kísilvegurinn, þjóðvegur 87 er lokaður ótímabundið vegna framkvæmda. Hjáleiðir eru merktar á svæðinu. 

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og því er umferð þar stýrt með ljósum. Brúin hefur reynst í verra ástandi en búist var við og nú er áætlað að vinnan standi fram í síðari hluta september.