Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 23.2.2018

23.2.2018 6:41

Færð og aðstæður

Snjóþekja, hálka eða hálkublettir eru á Suð-vestanverðu landinu. Þæfingsfærð er á Kjósarskarði og Þingvallavegi en ófært á Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði en þar er verið að moka. 

Á Vesturlandi er snjóþekja, hálka eða hálkublettir og éljagangur nokkuð víða. Þæfingsfærð er á  milli Ólafsvíkur og Grundarfjarðar og á Bröttubrekku. Enn vantar upplýsingar um nokkrar leiði en þær koma fljótlega.

Á Vestfjörðum er víða Snjóþekja, hálka eða hálkublettir. Þungfært er Steingrímsfjarðarheiði, Þröskulda, Kleifaheiði og Hálfdán en þæfingsfærð á Mikladal, Gemlufallsheiði og í Súgandafirði. Ófært er á Kleifaheiði. Verið er að moka flestar leiði og koma upplýsing inn síðar.

Það er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á vegum á Norðurlandi vestra Þæfingsfærð er í Héðinsfirði. Enn vantar upplýsingar um nokkrar leiði en þær koma fljótlega.

Á Norðaustur- og Austurlandi er víðast hvar greiðfært en hálkublettir yfir Mývatns- og Möðrudalsöræfi, Fagradal, Vatnsskarð eystra og Fjarðarheiði. Einnig er greiðfært með suðausturströndinni að Höfn en þar fyrir vestan eru hálkublettir eða hálka.

Skemmdir á slitlagi

Í því veðurfari sem hefur gengið yfir að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Grjóthrun í Hvalnesskriðum

Vegna mikillar úrkomu hefur verið töluvert grjóthrun í Hvalnesskriðum og eru vegfarendur beðnir að fara varlega.

Vatnavextir í Fáskrúðsfirði

Vatn flæðir yfir veg á þremur stöðum í sunnanverðum Fáskrúðsfirði og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og fara varlega.

Þungatakmarkanir

Viðauki 1 hefur verið felldur úr gildi á öllum vegum í Árnessýslu, Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu nema á Hringvegi frá Reykjavík að Selfossi.

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.