Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 22.6.2018

22.6.2018 8:24

Malbikun

Í dag, föstudaginn 22. júní er verið að malbika öxl á Reykjanesbraut við Innri Njarðvík í átt að Keflavík. Þrengt er um eina akrein og má búast við lítilsháttar umferðartöfum fram til kl. 15:00.

Verið er að malbika Skutulsfjarðarbraut á Ísafirði, milli hringtorgs og Vestfjarðavegar (60). Búast má við lítilsháttar umferðartöfum en hjáleið er um Seljalandsveg. 

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Krýsuvíkurvegur lokaður á sunnudaginn

Krýsuvíkurvegur verður lokaður vegna Íslandsmóts í hjólreiðum, sunnudaginn 24. júní frá kl 10:00 til 12:30.

Hálendisvegir

Hálendisvegir eru óðum að opnast en engu að síður er enn akstursbann á allmörgum hálendisvegum og slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Rétt er að ítreka að það er lögbrot að fara inn á veg sem merktur er með skiltinu allur akstur bannaður. Sjá nánar hér

Lokanir í jarðgöngum undir Breiðadalsheiði

Vegna vinnu við vatnsvarnir verður Breiðadalsleggur (til/frá Önundarfirði) lokaður yfir nóttina virka daga, frá miðnætti  til kl. 7:00. - Óljóst er hversu langan tíma þetta tekur en reikna má með megninu af júní. Þetta hefur ekki áhrif á umferð milli Súgandafjarðar og Skutulsfjarðar.

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.