Umferðarþjónusta - Tilkynning - 22.5.2018
Frá veðurfræðingi 22. maí kl. 07:30
Hvessir í dag suðvestan- og vestanlands og vindur verður í hámarki á milli kl. 14 og 17. SA-stormur þegar verst lætur og hviður allt að 35 m/s m.a. undir Hafnarfjalli og á norðanverðu Snæfellsnesi. Eins á utanverðu Kjalarnesi og í Hvalfirði. Rigning, einnig á fjallvegum.
Akstursbann á hálendisvegum
Akstursbann er nú á fjölmörgum hálendisvegum og -slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Því miður ber talsvert á því að ökumenn virði ekki merkingar um þessar lokanir sem settar eru á til að hlífa bæði vegunum sjálfum og náttúrunni í kringum þá fyrir átroðningi og skemmdum sem auðveldlega verða á þessum árstíma. Því er rétt að árétta að það er beinlínis lögbrot að fara inn á veg framhjá merkinu allur akstur bannaður.
Viðgerð á Miðfjarðarárbrú
Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.