Umferðarþjónusta - Tilkynning - 22.2.2018
Lokað
Vegurinn í Álftafirði (milli Djúpavogs og Hafnar) er í sundur vegna vatnavaxta en unnið er að viðgerð.
Fróðárheiði er lokuð vegna veðurs.
Færð og aðstæður
það er víða snjóþekja eða hálka á Suðurlandi en þæfingsfærð er á Mosfellsheiði, Kjósarskarði, Krýsuvíkurvegi og Bláfjallavegi.
Á Vesturlandi og Vestfjörðum er snjóþekja, hálka eða hálkublettir og éljagangur nokkuð víða.
Það er hálka eða snjóþekja á vegum á Norðurlandi vestra en á Norðausturlandi og Austurlandi er víðast hvar greiðfært. Einnig er greiðfært með suðausturströndinni að Lómagnúp en þar eru hálkublettir á kafla.
Grjóthrun í Hvalnesskriðum
Vegna mikillar úrkomu hefur verið töluvert grjóthrun í Hvalnesskriðum og eru vegfarendur beðnir að fara varlega.Vatnavextir í Fáskrúðsfirði
Vatn flæðir yfir veg á þremur stöðum í sunnanverðum Fáskrúðsfirði og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og fara varlega.Skemmdir á slitlagi
Í því veðurfari sem hefur gengið yfir að undanförnu hefur borið á skemmdum á slitlagi vega. Vegfarendur eru beðnir um að sýna sérstaka aðgát og haga akstri með tilliti til ástands vegar.
Þungatakmarkanir
Ásþungi
Viðauki 1 hefur verið felldur úr gildi á öllum vegum í Árnessýslu, Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu nema á Hringvegi frá Reykjavík að Selfossi.
Þingskálavegur
Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.