Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 22.2.2018

22.2.2018 6:45

Lokað í Álftafirði

Vegurinn í Álftafirði (milli Djúpavogs og Hafnar) er í sundur en unnið er að viðgerð.

Færð og aðstæður

Hálkublettir eru á Reykjanesbraut og Höfuðborgarsvæðinu en á Suðurlandi er víða snjóþekja.

Á Vesturlandi er snjóþekja á flestum leiðum en þæfingur á Holtavörðuheiði og Fróðárheiði.

Snjóþekja, hálka eða hálkublettir eru á Vestfjörðum.

Á Norðurlandi vestra er hálka eða snjóþekja á vegum en á Norðausturlandi og Austurlandi er víðast greiðfært en einhverjir hálkublettir á fjallvegum.

Það er einnig að mestu greiðfært með suðausturströndinni.

Grjóthrun í Hvalnesskriðum

Vegna mikillar úrkomu hefur verið töluvert grjóthrun í Hvalnesskriðum og eru vegfarendur beðnir að fara varlega.

Vatnavextir í Fáskrúðsfirði

Vatn flæðir yfir veg á þremur stöðum í sunnanverðum Fáskrúðsfirði og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og fara varlega.

Skemmdir á slitlagi

Í því veðurfari sem hefur gengið yfir að undanförnu hefur borið á skemmdum á slitlagi vega. Vegfarendur eru beðnir um að sýna sérstaka aðgát og haga akstri með tilliti til ástands vegar.

Ófært við Norðlingafljót

Ófært er innst á Hvítársíðuvegi (523) við brúna yfir Norðlingafljót þar sem vatn flæðir yfir veg.

Þungatakmarkanir

Ásþungi

Viðauki 1 hefur verið felldur úr gildi á öllum vegum í Árnessýslu, Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu nema á Hringvegi frá Reykjavík að Selfossi.

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.