Umferðarþjónusta - Tilkynning - 22.10.2017
Færð og aðstæður
Enn eru hálkublettir á fáeinum köflum á Suðurlandi eftir nóttina en þetta er þó óðum að taka upp.
Á Vesturlandi eru hálkublettir á Bröttubrekku, Svínadal og Fróðárheiði.
Á Vestfjörðum er hálka á Hálfdáni og Mikladal en hálkublettir á Kleifaheiði, Gemlufallsheiði, Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum.
Framkvæmdir á Krýsuvíkurvegi
Unnið er við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í stutta stund, allt að þrisvar sinnum á dag.
Borgarfjarðarbrú
Nú er unnið að lokaáfanga gólfviðgerðar á Borgarfjarðarbrú. Umferð er stýrt með ljósum. Verkinu á að ljúka 14. nóvember.
Hálendisvegir
Vegir á hálendinu eru nú flestir orðnir ófærir og allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.