Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 21.8.2018

21.8.2018 10:06

Fræsing á Borgarbraut

Í dag, þriðjudaginn 21. ágúst verða fræstar báðar akreinar á Borgarbraut, frá Böðvarsgötu að Þórðargötu. Þrengt verður á annarri akreininni í einu. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir frá kl. 13:00 til kl. 19:00.

Þingvallavegur lokaður 

Þingvallavegur (36) verður lokaður allri umferð milli þjónustumiðstöðvarinnar og eystri gatnamótanna við Vallaveg (361) fram í október. Hjáleið er um Vallaveg (361) Sjá nánar hér

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og því er umferð þar stýrt með ljósum. Brúin hefur reynst í verra ástandi en búist var við og nú er áætlað að vinnan standi fram í síðari hluta september.