Umferðarþjónusta - Tilkynning - 21.6.2018
Ábendingar frá veðurfræðingi 21. júní kl: 11:30
Litur: GulurHvöss sunnanátt á vestanverðu landinu í dag, 13-20 m/s. Hvassast á norðanverðu Snæfellsnesi og vindhviður jafnvel yfir 30 m/s. Lægir í nótt.
Malbikun á Ísafirði
Í dag og á morgun verður Skutulsfjarðarbraut á Ísafirði malbikuð milli hringtorgs og Vestfjarðavegar (60). Búast má við lítilsháttar umferðartöfum og bent er á hjáleið um Seljalandsveg.Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Krýsuvíkurvegur lokaður á sunnudaginn
Krýsuvíkurvegur verður lokaður vegna Íslandsmóts í hjólreiðum, sunnudaginn 24. júní frá kl 10:00 til 12:30.
Hálendisvegir
Hálendisvegir eru óðum að opnast. Búið er að opna Kjöl, tvær leiðir af þremur inn í Landmannalaugar og á Austurlandi er opið inn í Kverkfjöll og inn í Öskju.
Engu að síður er enn akstursbann á allmörgum hálendisvegum og slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Rétt er að ítreka að það er lögbrot að fara inn á veg sem merktur er með skiltinu allur akstur bannaður. Sjá nánar hér
Lokanir í jarðgöngum undir Breiðadalsheiði
Vegna vinnu við vatnsvarnir verður Breiðadalsleggur (til/frá Önundarfirði) lokaður yfir nóttina virka daga, frá miðnætti til kl. 7:00. - Óljóst er hversu langan tíma þetta tekur en reikna má með megninu af júní. Þetta hefur ekki áhrif á umferð milli Súgandafjarðar og Skutulsfjarðar.
Viðgerð á Miðfjarðarárbrú
Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.