Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 21.2.2018

21.2.2018 18:56

Færð og aðstæður

 Á Suður- og Suðvesturlandi er nú að mestu orðið greiðfært en hálkublettir eru á nokkrum leiðum og krapi á Hellisheiði og Krýsuvíkurvegi. Flughálka er á efri hluta Grafningsvegar.

Vegir eru víða greiðfærir á Vesturlandi en hálkublettir eru á nokkrum leiðum.

Hálka eða hálkublettir eru á flestum leiðum á Vestfjörðum.

Á Norðurlandi er mikið greiðfært en hálkublettir á fjallvegum og útvegum.

Það er víða hálkublettir á Austurlandi en að mestu greiðfært með suðausturströndinni.

Skemmdir á slitlagi

Í því veðurfari sem hefur gengið yfir að undanförnu hefur borið á skemmdum á slitlagi vega. Vegfarendur eru beðnir um að sýna sérstaka aðgát og haga akstri með tilliti til ástands vegar.

Ófært við Norðlingafljót

Ófært er innst á Hvítársíðuvegi (523) við brúna yfir Norðlingafljót þar sem vatn flæðir yfir veg.

Þungatakmarkanir

Ásþungi

Viðauki 1 hefur verið felldur úr gildi á öllum vegum í Árnessýslu, Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu nema á Hringvegi frá Reykjavík að Selfossi.

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.