Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 21.2.2018

21.2.2018 14:01

Súðavíkurhlíð

Súðavíkurhlíð snjóflóð: Hættustigi er aflýst miðvikudag kl. 13:45. Opið.

Ábendingar frá veðurfræðingi 21. feb. kl. 10:00

Litur: Appelsínugulur

Næstu tvær klst. versnar veður mjög á Norðurlandi, einkum vestantil. Frá Hrútafirði yfir á Siglufjörð og Eyjafjörð er reiknað með SA 25-32 m/s á milli kl. 11 og 14 og lengur austantil. Þvert á veg og með slyddu og hálku.

Færð og aðstæður

Hvassviðri og vatnselgur er á Reykjanesbraut og Grindavíkurvegi. Mikið hvassviðri er á Suðurstrandavegi. Krapi er á Hellisheiði og unnið að útmokstri og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát í kringum moksturstæki.

Á Suðvestur- og Suðurlandi er krapi og hálkublettir. Flughált er í Grafningi.

Á Vesturlandi er víðast hvar snjóþekja, krapi, hálka eða hálkublettir.

Hálka, snjóþekja og þæfingsfærð er á flestum vegum á Vestfjörðum. Ófært er á Klettsháls og Kleifaheiði en unnið er að mokstri..

Á Norðurlandi er hálka, skafrenningur og mikið hvassviðri. Hálka, hvassviðri og skafrenningur er á Öxnadalsheiði.

Það er víða hálka, hálkublettir og éljagangur á Austurlandi og mikið hvassviðri. Með suðausturströndinni eru hálkublettir.

Skemmdir á slitlagi

Í því veðurfari sem hefur gengið yfir að undanförnu hefur borið á skemmdum á slitlagi vega. Vegfarendur eru beðnir um að sýna sérstaka aðgát og haga akstri með tilliti til ástands vegar.

Ófært við Norðlingafljót

Ófært er innst á Hvítársíðuvegi (523) við brúna yfir Norðlingafljót þar sem vatn flæðir yfir veg.

Þungatakmarkanir

Ásþungi

Viðauki 1 hefur verið felldur úr gildi á öllum vegum í Árnessýslu, Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu nema á Hringvegi frá Reykjavík að Selfossi.

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.