Umferðarþjónusta - Tilkynning - 21.2.2018
Lokanir
Búist er við að þær leiðir þar sem lokanir eru enn í gildi verði opnaðar á næstu klukkustund.
Súðavíkurhlíð
Súðavíkurhlíð snjóflóð: Hættustigi er lýst yfir í dag miðvikudag kl. - 11:00 Lokað
Ábendingar frá veðurfræðingi 21. feb. kl. 10:00
Litur: AppelsínugulurNæstu
tvær klst. versnar veður mjög á Norðurlandi, einkum vestantil. Frá
Hrútafirði yfir á Siglufjörð og Eyjafjörð er reiknað með SA 25-32 m/s á milli
kl. 11 og 14 og lengur austantil. Þvert á veg og með slyddu og hálku.
Færð og aðstæður
Hvassviðri og vatnselgur er á Reykjanesbraut og Grindavíkurvegi. Mikið hvassviðri er á Suðurstrandavegi.
Á Suðvestur- og Suðurlandi er krapi, hálka og hálkublettir.
Á Vesturlandi er víðast hvar snjóþekja, hálka, hálkublettir og éljagangur. Krapi og hvassviðri er á Vatnaleið.
Á Norðurlandi er hálka, skafrenningur og mikið hvassviðri. Hálka, hvassviðri og skafrenningur er á Öxnadalsheiði.
Það er víða hálka, hálkublettir og éljagangur á Austurlandi og mikið hvassviðri. Flughált er á milli Breiðdalsvíkur og Djúpavogs. Með suðausturströndinni eru hálkublettir og snjóþekja.
Skemmdir á slitlagi
Í því veðurfari sem hefur gengið yfir að undanförnu hefur borið á skemmdum á slitlagi vega. Vegfarendur eru beðnir um að sýna sérstaka aðgát og haga akstri með tilliti til ástands vegar.
Ófært við Norðlingafljót
Ófært er innst á Hvítársíðuvegi (523) við brúna yfir Norðlingafljót
þar sem vatn flæðir yfir veg.
Þungatakmarkanir
Ásþungi
Viðauki 1 hefur verið felldur úr gildi á öllum vegum í Árnessýslu, Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu nema á Hringvegi frá Reykjavík að Selfossi.
Þingskálavegur
Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.