Umferðarþjónusta - Tilkynning - 21.2.2018
Áætlaðar lokanir miðvikudaginn 21. febrúar
Hér í viðhenginu koma fram áætlaðar lokanir vegna veðurs fyrir morgundaginn, miðvikudaginn 21. febrúar.
Lokanir
Búið er að loka vegunum um Fróðárheiði, Steingrímsfjarðarheiði, Þröskulda, Holtavörðuheiði, Bröttubrekku, Hellisheiði, Þrengsli, Sandskeið, Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði.
Opnanir
Búið er að opna vegina um Reykjanesbraut, Grindavíkurveg, Kjalarnes og um Hafnarfjall.
Súðavíkurhlíð
Súðavíkurhlíð snjóflóð: Hættustigi er lýst yfir í dag miðvikudag kl. - 11:00 Lokað
Ábendingar frá veðurfræðingi 21. feb. kl. 10:00
Litur: AppelsínugulurNæstu
tvær klst. versnar veður mjög á Norðurlandi, einkum vestantil. Frá
Hrútafirði yfir á Siglufjörð og Eyjafjörð er reiknað með SA 25-32 m/s á milli
kl. 11 og 14 og lengur austantil. Þvert á veg og með slyddu og hálku.
Færð og aðstæður
Hálkublettir eru á Höfuðborgarsvæðinu. Mikið hvassviðri og vatnselgur er á Reykjanesbraut og Grindavíkurvegi. Mikið hvassviðri er á Suðurstrandavegi.
Á Suðvestur- og Suðurlandi er krapi, hálka og hálkublettir.
Á Vesturlandi er víðast hvar snjóþekja, hálka, hálkublettir og éljagangur. Þæfingsfærð og hvassviðri er á Vatnaleið. Ófært er á milli Ólafsvíkur og Grundarfjarðar vegna veðurs.
Á Norðurlandi er hálka, skafrenningur og mikið hvassviðri. Snjóþekja og skafrenningur er á Öxnadalsheiði.
Það er víða hálka, hálkublettir og éljagangur á Austurlandi og mikið hvassviðri. Flughált er á milli Breiðdalsvíkur og Djúpavogs. Með suðausturströndinni eru hálkublettir og snjóþekja.
Ófært við Norðlingafljót
Ófært er innst á Hvítársíðuvegi (523) við brúna yfir Norðlingafljót
þar sem vatn flæðir yfir veg.
Þungatakmarkanir
Ásþungi
Viðauki 1 hefur verið felldur úr gildi á öllum vegum í Árnessýslu, Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu nema á Hringvegi frá Reykjavík að Selfossi.
Þingskálavegur
Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.