Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 21.2.2018

21.2.2018 10:00

Áætlaðar lokanir miðvikudaginn 21. febrúar

Hér í viðhenginu koma fram áætlaðar lokanir vegna veðurs fyrir morgundaginn, miðvikudaginn 21. febrúar.

Mögulegar lokanir

Lokanir

Búið er að loka vegunum um Fróðárheiði, Steingrímsfjarðarheiði, Þröskulda, Hafnarfjall, Holtavörðuheiði, Bröttubrekku, Kjalarnes, Hellisheiði, Þrengsli, Sandskeið, Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði.

Opnanir

Búið er að opna veginn um Reykjanesbraut og Grindavíkurveg en þar er mikið hvassviðri og vatnselgur.

Ábendingar frá veðurfræðingi 21. feb. kl. 10:00

Litur: Appelsínugulur

Næstu tvær klst. versnar veður mjög á Norðurlandi, einkum vestantil. Frá Hrútafirði yfir á Siglufjörð og Eyjafjörð er reiknað með SA 25-32 m/s á milli kl. 11 og 14 og lengur austantil. Þvert á veg og með slyddu og hálku.

Færð og aðstæður

Hálkublettir eru á Höfuðborgarsvæðinu. Mikið hvassviðri og vatnselgur er á Reykjanesbraut og Grindavíkurvegi. Hálkublettir og mikið hvassviðri er á Suðurstrandavegi.

Á Suðvestur- og Suðurlandi er krapi, hálka og hálkublettir.

Á Vesturlandi er víðast hvar snjóþekja, hálka, hálkublettir og éljagangur. Þæfingsfærð og hvassviðri er á Vatnaleið.

Hálka, snjóþekja og hálkublettir er á flestum vegum á Vestfjörðum. Ófært er á öllum fjallvegum á sunnanverðum Vestfjörðum. Snjóflóðahætta er möguleg á Súðavíkurhlíð í fyrramálið, miðvikudaginn 21. feb.

Á Norðurlandi er fremur lítið um hálku nema í Húnavatnssýslum. Snjóþekja er á Öxnadalsheiði.

Það er víða hált eða hálkublettir á Austurlandi. Með suðausturströndinni eru hálkublettir og snjóþekja og víða éljagangur.

Ófært við Norðlingafljót

Ófært er innst á Hvítársíðuvegi (523) við brúna yfir Norðlingafljót þar sem vatn flæðir yfir veg.

Þungatakmarkanir

Ásþungi

Viðauki 1 hefur verið felldur úr gildi á öllum vegum í Árnessýslu, Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu nema á Hringvegi frá Reykjavík að Selfossi.

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.